Persónuverndaryfirlýsing
Tanni ferðaþjónusta ehf.
Almennt
Tanni ferðaþjónusta ehf., kt. 680593-2489, Strandgata 14, 735 Eskifirði, er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd mjög alvarlega. Tanni ferðaþjónusta ehf., leggur mikla áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf.
Í þessari persónuverndaryfirlýsingu má sjá hvaða persónuupplýsingum Tanni ferðaþjónusta ehf., safnar um einstaklinga og í hvaða tilgangi. Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hvað þær eru geymdar lengi. Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli Tanni ferðaþjónusta ehf., safnar persónuupplýsingum, hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 (hér eftir persónuverndarlög).
Hvað eru persónuupplýsingar og vinnsla persónuupplýsinga?
Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að rekja til tiltekins einstaklings, svo sem upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer, fjárhag, heilsufar, IP tölu og fleira. Í 2. og 3. tl. 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga er að finna nánari skilgreiningu á persónuupplýsingum.
Með viðkvæmum persónuupplýsingum er átt við persónuupplýsingar sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt persónuverndarlögum s.s. upplýsingar um þjóðernisuppruna eða kynþátt, stjórnmála- og trúarskoðanir, stéttarfélagsaðild, erfðagögn, heilsu, kynlíf eða kynhneigð.
Með vinnslu persónuupplýsinga er átt við alla meðferð og notkun persónuupplýsinga svo sem söfnun, skráningu, varðveislu, breytingu eða eyðingu. Í 4. tl. 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga er að finna nánari skilgreiningu á vinnslu persónuupplýsinga.
Hvernig vinnur Tanni ferðaþjónusta ehf., persónuupplýsingar?
Hjá Tanna ferðaþjónustu ehf., fer vinnsla persónuupplýsinga fram á lögmætum grundvelli og í samræmi við persónuverndarlög. Tanni ferðaþjónusta ehf.,gætir jafnframt að því að persónuupplýsingar séu ekki unnar frekar á þann hátt að vinnslan sé ósamrýmanleg upprunalegum tilgangi vinnslunnar. Tanni ferðaþjónusta ehf., gætir að því að farið sé að eftirfarandi meginreglum:
Sjálfvirk ákvarðanataka
Sjálfvirk ákvarðanataka er það ferli þegar tekin er ákvörðun með sjálfvirkum hætti án nokkurrar mannlegrar aðkomu. Slíkar ákvarðanir geta verið byggðar á persónusniðum, þ.e. þegar persónuupplýsingar eru notaðar til að meta ákveðna þætti er varða hagi einstaklings, einkum að greina eða spá fyrir um þætti er varða frammistöðu hans í starfi, fjárhagsstöðu, heilsu, o.fl. Dæmi um sjálfvirka ákvarðanatöku væri ef ákvörðun um lánveitingu í gegnum vefsíðu byggði eingöngu á lánshæfismati.
Ekki fer fram sjálfvirk ákvarðanataka við vinnslu persónuupplýsinga hjá okkur.
Um hverja safnar Tanni ferðaþjónusta ehf., persónuupplýsingum?
Í starfsemi Tanna ferðaþjónustu ehf., er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem Tanni ferðaþjónusta ehf., hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess, viðsemjendur, viðskiptavini og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við.
Hvaða persónuupplýsingum safnar Tanni ferðaþjónusta ehf?
Tanni ferðaþjónusta ehf., safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga eftir því um hvaða starfsemi er að ræða. Undir öllum kringumstæðum leitast Tanni ferðaþjónusta ehf., við að safna einungis þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar.
Í ákveðnum tilvikum þurfum að safna viðkvæmum persónuupplýsingum, svo sem upplýsingum um heilsufar og aðild að stéttarfélagi starfsmanna. Sérstök aðgát er höfð við meðferð slíkra upplýsinga.
Við söfnum og vinnum með eftirfarandi flokka persónuupplýsinga um umsækjendur, viðskiptavini, fyrrverandi og núverandi starfsfólk:
Tanni ferðaþjónusta ehf., safnar og vinnur með eftirfarandi flokka persónuupplýsinga um starfsmenn, viðskiptavini og viðsemjendur:
Tölvupóstsamskipti
Við notum m.a. tölvupóst til að eiga í samskiptum við umsækjendur, viðskiptavini og viðsemjendur og söfnum í þeim tilgangi tengiliðaupplýsingum ásamt samskiptunum sjálfum.
Bókanir
Þegar bókuð er ferð hjá okkur, hvort sem er á heimasíðunni okkar eða hjá umboðsaðila, er ýmsum upplýsngum deilt með okkur eins og t.d. nafni, netfangi og greiðsluupplýsingum ásamt ferðauppupplýsingum.
Símkerfi
Þegar hringt er í símanúmer okkar þá skráum við símanúmerið sem hringt er úr, tímasetningu símtalsins og lengd þess.
Viðskiptamannaskrá
Í þeim tilgangi að halda skrá um núverandi og fyrrverandi viðskiptavini okkar tengiliða viðskiptavina (lögaðila) ásamt viðskiptasögu, söfnum við grunnupplýsingum um þá.
Samningar
Við varðveitum samninga sem lögaðilar (tengiliðir) gera við okkur. Þær persónuupplýsingar sem við söfnum í tengslum við gerða samninga eru grunnupplýsingar.
Reikningagerð
Í þeim tilgangi að senda út reikninga og innheimta greiðslur, söfnum við grunnupplýsingum um greiðanda ásamt reikningsupphæð.
Samfélagsmiðlar
Í tengslum við markaðssetningu á samfélagsmiðlum söfnum við myndefni, nafni viðskiptavinar, notendanafni og innihaldi samskipta.
Í þeim tilvikum þar sem Tanni ferðaþjónusta ehf., þarf að safna viðkvæmum persónuupplýsingum, s.s. sem upplýsingum um aðild starfsmanna að stéttarfélagi og um heilsufar starfsmanna er sérstök aðgát höfð við meðferð slíkra upplýsinga.
Tilgangur með söfnun persónuupplýsinga
Lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga
Tanni ferðaþjónusta ehf., safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:
Hve lengi geymir Tanni ferðaþjónusta ehf., persónuupplýsingar?
Tanni ferðaþjónusta ehf., geymir persónupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum lengur er þeim eytt með öruggum hætti.
Frá hverjum safnar Tanni ferðaþjónusta ehf., persónuupplýsingum?
Þá safnar Tanni ferðaþjónusta ehf., að meginstefnu til persónuupplýsingum beint frá þeim einstaklingum sem um ræðir en styðst einnig við opinberar skrár í vinnslu sinni. Þegar og ef upplýsingum er safnað frá öðrum þriðju aðilum reynir fyrirtækið eftir fremsta megni að upplýsa viðkomandi um það.
Hvenær miðlar Tanni ferðaþjónusta ehf., persónuupplýsingum til þriðju aðila og af hverju?
Tanni ferðaþjónusta ehf., miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem eru ráðnir af fyrirtækinu til að vinna fyrir fram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitendur, sem sjá um að geyma gögn meðal annars og verktakar. Í þeim tilfellum gerir fyrirtækið vinnslusamning við viðkomandi aðila. Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu hans til að fylgja fyrirmælum fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi. Jafnframt ber honum skylda til að tryggja öryggi upplýsinganna með viðeigandi hætti.
Tanni ferðaþjónusta ehf., miðlar einnig upplýsingum til þriðju aðila þegar skylda stendur til þess samkvæmt lögum.
Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið
Tanna ferðaþjónustu ehf., er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Tanni ferðaþjónusta ehf., gerir það ekki undir neinum kringumstæðum nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Öryggi upplýsinganna
Tanni ferðaþjónusta ehf., leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra öryggisráðstafana til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna.
Auk þess stuðlar fyrirtækið að aukinni vitundarvakningu hjá starfsmönnum með reglulegri þjálfun og fræðslu um hvernig gæta skal að öryggi persónuupplýsinga.
Réttindi einstaklinga
Hafi einstaklingar veitt samþykki fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga eiga þeir rétt samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla samþykki sitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór áður en samþykki var afturkallað. Þá njóta þeir einnig annarra réttinda, svo sem réttar til að vera upplýstir um vinnslu, réttar til aðgangs að gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum verði eytt, réttar til að hindra að unnið verði með persónuupplýsingar um þá og réttar til að flytja eigin upplýsingar. Hafa skal í huga að réttindi einstaklinga eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum skilyrðum.
Upplýsingar um ábyrgðaraðila
Nafn: Tanni ferðaþjónusta ehf.
Heimilisfang: Strandgata 14, 735 Eskifirði
Netfang: www.tannitravel.is
Símanúmer: 476 1399.
Persónuverndarfulltrúi
Hafi einstaklingar frekari spurningar um persónuverndaryfirlýsingu þessa geta þeir ávallt haft samband við persónuverndarfulltrúann okkar. Þetta eru samskiptaupplýsingarnar hjá honum:
Nafn: Dattaca Labs Iceland ehf.
Heimilisfang: Ármúli 13, 108 Reykjavík.
Netfang: [email protected].
Símanúmer: 517 3444.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd
Dragi einstaklingar í efa að Tanni ferðaþjónusta ehf., meðhöndli persónuupplýsingar þeirra í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hafa þeir rétt til að senda erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
Endurskoðun á þessari persónuverndaryfirlýsingu
Persónuverndaryfirlýsing þessi getur frá einum tíma til annars tekið breytingum í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum og reglugerðum eða ef breytingar verða gerðar á því hvernig Tanni ferðaþjónusta ehf., vinnur með persónuupplýsingar. Verði breytingar gerðar á persónuverndaryfirlýsingu þessari verður tilkynnt um slíkt á heimasíðu fyrirtækisins www.tannitravel.is
Eftir að breytingar hafa verið gerðar á persónuverndaryfirlýsingu taka þær gildi þegar uppfærð útgáfa hefur verið birt.
Síðast uppfært 8. september 2022

- Að persónuupplýsingar séu unnar með sanngjörnum hætti.
- Að persónuupplýsingum sé einungis safnað í skýrum tilgangi.
- Að ekki sé safnað meiri persónuupplýsingum en nauðsynlegt er.
- Að persónuupplýsingar séu nákvæmar og uppfærðar þegar þörf krefur.
- Að persónuupplýsingar séu ekki geymdar lengur en þörf er á.
- Að gætt sé að öryggi persónuupplýsinga með viðeigandi varúðarráðstöfunum.
Sjálfvirk ákvarðanataka
Sjálfvirk ákvarðanataka er það ferli þegar tekin er ákvörðun með sjálfvirkum hætti án nokkurrar mannlegrar aðkomu. Slíkar ákvarðanir geta verið byggðar á persónusniðum, þ.e. þegar persónuupplýsingar eru notaðar til að meta ákveðna þætti er varða hagi einstaklings, einkum að greina eða spá fyrir um þætti er varða frammistöðu hans í starfi, fjárhagsstöðu, heilsu, o.fl. Dæmi um sjálfvirka ákvarðanatöku væri ef ákvörðun um lánveitingu í gegnum vefsíðu byggði eingöngu á lánshæfismati.
Ekki fer fram sjálfvirk ákvarðanataka við vinnslu persónuupplýsinga hjá okkur.
Um hverja safnar Tanni ferðaþjónusta ehf., persónuupplýsingum?
Í starfsemi Tanna ferðaþjónustu ehf., er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi hópa einstaklinga. Þær persónuupplýsingar sem Tanni ferðaþjónusta ehf., hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess, viðsemjendur, viðskiptavini og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við.
Hvaða persónuupplýsingum safnar Tanni ferðaþjónusta ehf?
Tanni ferðaþjónusta ehf., safnar ólíkum persónuupplýsingum um mismunandi hópa einstaklinga eftir því um hvaða starfsemi er að ræða. Undir öllum kringumstæðum leitast Tanni ferðaþjónusta ehf., við að safna einungis þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar.
Í ákveðnum tilvikum þurfum að safna viðkvæmum persónuupplýsingum, svo sem upplýsingum um heilsufar og aðild að stéttarfélagi starfsmanna. Sérstök aðgát er höfð við meðferð slíkra upplýsinga.
Við söfnum og vinnum með eftirfarandi flokka persónuupplýsinga um umsækjendur, viðskiptavini, fyrrverandi og núverandi starfsfólk:
- grunnupplýsingar (nafn, heimilisfang, netfang o.fl.)
- andlitsmynd
- stéttarfélagsaðild
- bankaupplýsingar
- skattaupplýsingar
- upplýsingar
- úr starfsumsókn
- úr ráðningarsamningi
- úr tímaskráningu
- um launagreiðslur
Tanni ferðaþjónusta ehf., safnar og vinnur með eftirfarandi flokka persónuupplýsinga um starfsmenn, viðskiptavini og viðsemjendur:
Tölvupóstsamskipti
Við notum m.a. tölvupóst til að eiga í samskiptum við umsækjendur, viðskiptavini og viðsemjendur og söfnum í þeim tilgangi tengiliðaupplýsingum ásamt samskiptunum sjálfum.
Bókanir
Þegar bókuð er ferð hjá okkur, hvort sem er á heimasíðunni okkar eða hjá umboðsaðila, er ýmsum upplýsngum deilt með okkur eins og t.d. nafni, netfangi og greiðsluupplýsingum ásamt ferðauppupplýsingum.
Símkerfi
Þegar hringt er í símanúmer okkar þá skráum við símanúmerið sem hringt er úr, tímasetningu símtalsins og lengd þess.
Viðskiptamannaskrá
Í þeim tilgangi að halda skrá um núverandi og fyrrverandi viðskiptavini okkar tengiliða viðskiptavina (lögaðila) ásamt viðskiptasögu, söfnum við grunnupplýsingum um þá.
Samningar
Við varðveitum samninga sem lögaðilar (tengiliðir) gera við okkur. Þær persónuupplýsingar sem við söfnum í tengslum við gerða samninga eru grunnupplýsingar.
Reikningagerð
Í þeim tilgangi að senda út reikninga og innheimta greiðslur, söfnum við grunnupplýsingum um greiðanda ásamt reikningsupphæð.
Samfélagsmiðlar
Í tengslum við markaðssetningu á samfélagsmiðlum söfnum við myndefni, nafni viðskiptavinar, notendanafni og innihaldi samskipta.
Í þeim tilvikum þar sem Tanni ferðaþjónusta ehf., þarf að safna viðkvæmum persónuupplýsingum, s.s. sem upplýsingum um aðild starfsmanna að stéttarfélagi og um heilsufar starfsmanna er sérstök aðgát höfð við meðferð slíkra upplýsinga.
Tilgangur með söfnun persónuupplýsinga
- Geta efnt samningsskyldu, til dæmis við starfsmenn.
- Geta veitt ákveðna þjónustu, til viðskiptavina.
- Gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins.
- Gæta að lögmætum hagsmunum annarra.
- Uppfylla lagaskyldu.
Lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga
Tanni ferðaþjónusta ehf., safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:
- Til að uppfylla lagaskyldu.
- Til að uppfylla samningsskyldu.
- Á grundvelli samþykkis einstaklinga.
- Við verkefni í þágu almannahagsmuna eða beitingu opinbers valds.
- Til að unnt sé að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfu.