Tanni hefur um ára skeið rekið vörumerkið Meet the Locals sem býður upp á hópaferðir fyrir erlenda gesti. Í þessum ferðum hefur verið lögð áhersla á að gestir fái að sjá Austurland með augum heimamannsins og kynnast íbúum þess og sögu.
Þær vörur sem við bjóðum upp á eru meðal annars þorpsgöngur bæði á Fáskrúðsfirði og Eskifirði. Einnig bjóðum við upp á þriggja daga hjólaferð um eyðivíkur og firði hér fyrir austan. Á Reyðarfirði fetum við í fótspor KOYLI flokksins og kynnumst því hvaða áhrif seinni heimstyrjöldin hafði á svæðið. Fyrir þá sem hafa ekki áhuga á stríði er boðið upp á frið og ró í Núvitundar jóga göngu í Stöðvarfirði. Auk annara ferða að þá setjum við að sjálfsögðu saman sérsniðna pakka að þinni ósk.
Austurland hefur marga sérstöðu, hér búa rétt yfir 10.000 manns á svæði sem nær yfir 15.000 ferkílómetra. Hérna er ró friður og óspillt náttúra. Leyfðu okkur að sýna þér Austurlandið sem stendur okkur hjarta næst.