Innanlandsferðir
Tanni Travel hefur í áranna rás ferðast með hópa um allt Ísland en lagt áherslu á Austurland.
Hóparnir hafa verið af ýmsum gerðum og stærðum, með mismunandi þarfir.
Hafir þú áhuga á að fara í skemmtilegt ferðalag um Ísland, þá er Austurland frábært svæði með hálendið, skóginn og firðina í forgrunni. Hér er öflugt menningarlíf þar sem alltaf má finna eitthvað skemmtilegt um að vera, gististaðir eru fjölbreyttir og maturinn frábær, þar sem Austfirskar krásir eru á borðum.
Austurland er stórbrotið yfir sumarið en ekki síður veturinn, með frábær skíðasvæði, Stafdal og Oddsskarð, þar sem bretta- og skíðabrekkurnar bjóða alla velkomna.
Við þekkjum svæðið afar vel og leggjum okkur fram við að koma til móts við óskir þíns hóps, hvort sem hann er stór eða smár.
Vinahópar, gönguhópar, saumaklúbbar, fyrirtækjahópar og félagasamtök, óvissu- og hvataferðir, fundir, ráðstefnur, árshátíðir eða hvers sem þið óskið.
Kíktu á okkar hugmyndir, settu þig í samband við okkur og við gefum þér tilboð.