BLÁGIL
Íslenska sumarnóttin er án efa eitt það magnaðasta sem hægt er að upplifa í lífinu. Hljóðið er öðruvísi og lyktin er ógleymanleg.
Í þessu andrúmslofti munum við ganga um þetta frábæra svæði og skoða hinn litríka gimstein, Blágilsgljúfur. Blágil er sannarlega falin perla á *AUSTURLANDI, í fornu eldfjalli, tignarlegt og fallegt.
Í suðurhluta Breiðdals myndast skál þar sem ofboðslegur hiti hefur umbreytt berginu svo mikið að basaltið og andestítið er orðið fölgrænt og því erfitt að greina þau frá líparítinu.
Við hittumst í Breiðdal þar sem við hefjum gönguna, klukkan 20:00.
Hækkun: 400 m.
Fjöldi km: 9
Erfiðleikastig ferðar: 2/5
Gengið er með minni hópa, 10-20 manns.

Fjallaleiðsögumaðurinn
Fjallaleiðsögumaðurinn er Skúli Júlíusson, sem hefur stundað fjallgöngur á Austurlandi og um allt Ísland frá unga aldri. Hann unir sér hvergi betur en úti í náttúrunni, hvort heldur sem er skíðandi eða gangandi og notar hann allt árið til útivistar og útilegu. Hann hefur skrifað tvær bækur um gönguleiðir á Austurlandi, þær heita "101 Austurland, tindar og toppar" og "101 Austurland, göngurleiðir fyrir alla".