Með þér á Austurlandi frá 1993
Fjölskyldufyrirtæki á Eskifirði með áratuga reynslu af ferðum og fólksflutningum á Austurlandi.
Sagan okkar
Sveinn Sigurbjarnarson hóf rekstur með snjóbíl og fólksflutningabíl árið 1970. Fjórum árum síðar keypti hann snjóbílinn Tanna, sem var notaður til að flytja fólk yfir Oddsskarð. Nafn fyrirtækisins er dregið af honum.
Á Tanna voru einnig farnar ferðir með ferðamenn á Vatnajökul og á aðra jökla í samstarfi við Jöklarannsóknarfélag Íslands. Með tímanum fjölgaði bílunum og ferðirnar urðu fjölbreyttari.
Árið 1993 stofnuðu Sveinn og dóttir hans, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Tanna Travel. Díana hafði frá unga aldri fylgt föður sínum í ferðir og tók síðar við rekstrinum. Fyrirtækið er enn í eigu fjölskyldunnar og hefur frá upphafi verið með aðsetur á Eskifirði.
Sveinn Sigurbjarnarson við snjóbílinn Tanna, sem fyrirtækið dregur nafn sitt af.
1970
Sveinn hefur fólksflutninga á Austurlandi.
1974
Snjóbíllinn Tanni kemur til sögunnar.
1993
Sveinn og Díana stofna Tanna Travel.
2013
Díana tekur við sem framkvæmdastjóri.
2026
Þriðja kynslóðin tekur við þegar Sveinn verður framkvæmdastjóri.
Fólkið okkar
Sigfinnur Björnsson
Sölu- og markaðsstjóri
Bjarni Freyr Guðmundsson
Bílaflota- og rekstrarstjóri
Díana Mjöll Sveinsdóttir
Eigandi
Sigurbjörn Jónsson
Eigandi
Hluti af daglegu lífi á Austurlandi
Við búum og störfum á Austurlandi. Samstarf við fólk, fyrirtæki og félög á svæðinu er stór hluti af daglegu starfi okkar.
Þjónusta allt árið
Við önnumst skólaakstur í Fjarðabyggð, starfsmannaakstur fyrir Alcoa og ferðir fyrir íþróttafélög og viðburði á svæðinu.
Nám úti í náttúrunni
Frá nóvember 2023 höfum við stutt við starf Náttúruskólans með rútu og bílstjóra, svo börn geti tekið þátt í útinámi.
Samfélagsleg ábyrgð
Við verslum í heimabyggð þegar því verður við komið og styðjum menningar-, íþrótta- og félagsstarf á Austurlandi.
Nánar um samfélagsábyrgð okkar.
Samfélagsskýrsla · September 2025
Ferðumst um Austurland.
Við skipuleggjum hópferðir fyrir fyrirtæki, félög og vinahópa. Hvort sem um er að ræða dagsferð eða lengri ferð sjáum við um skipulagið í samstarfi við þig.