Samfélagsleg ábyrgð
Austurland er bæði heimili okkar og starfsvettvangur. Við styðjum við skóla, íþróttir, menningu og viðburði á svæðinu og veljum vörur og þjónustu úr heimabyggð þegar því verður við komið.
Í samfélagsskýrslunni segjum við frá starfsfólkinu okkar, samstarfsverkefnum og því hvernig við tökum þátt í samfélaginu á Austurlandi.
Með útgáfunni viljum við vera opin um starfið okkar, verkefnin sem við stöndum frammi fyrir og hvert við viljum stefna.
Stiklað á stóru
Út í náttúruna með Náttúruskólanum
Metnaðarfullt starf Náttúruskólans fangaði athygli okkar. Eftir samtöl við Hildi Bergsdóttur, einn stofnanda skólans, varð úr að við gerðum styrktarsamning við skólann. Hann felur í sér að við leggjum til rútu og bílstjóra þegar aka þarf með börnin á skólastað, sem er eins og nafnið gefur til kynna, úti í náttúrunni.
Bls. 15. Náttúruskólinn
Fólkið á bak við ferðirnar
Hjarta hvers fyrirtækis er starfsfólk þess. Starfsfólk okkar er með fjölbreyttan bakgrunn og við leggjum mikið upp úr því að öllum líði vel í vinnunni, það fái rými til að dafna og að styrkleikar hvers og eins nýtist sem best.
Bls. 6–7. Starfsfólkið okkar
Samstarf á Austurlandi
Undanfarin sumur höfum við boðið framlínustarfsfólki í ferðaþjónustu á Austurlandi að koma með okkur í ferðir, m.a. í Stuðlagil og upp í Snæfell. Við teljum mikilvægt að starfsfólk í ferðaþjónustu í landshlutanum þekki svæðið og fái tækifæri til þess að upplifa einstaka náttúru Austurlands á eigin skinni.
Bls. 13. Samstarf á Austurlandi
Samfélagsskýrsla
PDF · 77 MB