Rútuleiga á Austurlandi
Við önnumst akstur um allt Austurland, meðal annars á Egilsstöðum, í Seyðisfirði og á Eskifirði.
Við sjáum um akstur fyrir fyrirtæki, íþróttafélög, félagasamtök og aðra hópa. Við tökum meðal annars að okkur akstur á mót, fundi og viðburði og til og frá flugvelli.
Rúta er valin eftir fjölda farþega, farangri og akstursleið. Við getum ekið samkvæmt tilbúinni ferðaáætlun eða aðstoðað við að skipuleggja aksturinn. Allar rútur eru leigðar með bílstjóra.