Vafrakökur

Hér er útskýrt hvernig Tanni Travel notar vafrakökur og sambærilega vistun í vafra. Þú getur notað vefinn og bókunarkerfið án þess að samþykkja valfrjálsar vafrakökur fyrir greiningu eða auglýsingar.

Þitt val

Veldu Samþykkja allt til að leyfa valfrjálsu flokkana, Hafna valfrjálsum til að halda þeim óvirkum eða Stillingar vafrakaka til að velja einstaka flokka. Valfrjálsir flokkar eru óvirkir þar til þú samþykkir þá. Val þitt er vistað í 182 daga og því má breyta neðst á síðunni.

Virkni vefs og bókunarkerfis

tanni_cookie_consent varðveitir val þitt um vafrakökur í 182 daga. pll_language man hvaða tungumál þú velur í allt að eitt ár. Bókun notar bokunSessionId_… til að halda utan um bókunarlotu í 20 mínútur. WordPress kann einnig að vista tímabundnar upplýsingar um stuðning vafrans við tjákn.

Greining og auglýsingar

Með samþykki þínu getur bókunarkerfið hlaðið Google Analytics, auglýsingatólum Google, Meta Pixel, Amplitude og Mixpanel. Þau mæla heimsóknir, notkun bókunarkerfisins og árangur auglýsinga. Sameinuð rakningartól Bókunar eru aðeins virkjuð ef þú leyfir bæði greiningu og auglýsingar.

Meðal vafrakaka Google eru _ga og _ga_… (allt að 400 dagar) og _gcl_au (allt að 90 dagar). Google notar einnig test_cookie á doubleclick.net til að athuga stuðning við vafrakökur (15 mínútur). Auglýsingatól geta einnig notað aðrar vafrakökur og vistun í vafra. Amplitude og Mixpanel vista meðal annars greiningarauðkenni og atburði sem bíða sendingar. Slík staðbundin vistun hefur ekki sjálfvirkan gildistíma í vafranum.

Bókunarkerfið

Dagatal og greiðsluferli eru frá Bókun. Bókun vistar val á gjaldmiðli og notar New Relic til tæknilegs eftirlits með kerfinu, meðal annars með vistun upplýsinga um lotu í vafra. Þessi þjónusta getur hlaðist þegar bókunardagatal er opnað. Greiðslu- og bókunarþjónustur kunna að nota frekari vistun meðan á bókun stendur.

Að breyta samþykki

Þú getur afturkallað valfrjálst samþykki í stillingum vafrakaka. Þá stöðvum við rakningu sem samþykkið stýrir og fjarlægjum mælingakökur sem þessi vefur hefur aðgang að. Síðan getur endurhlaðist til að stöðva tól sem hafa þegar hlaðist. Vafrakökur eða gögn hjá öðrum þjónustuaðila gæti þurft að fjarlægja í stillingum vafrans.

Hafðu samband

Fyrirspurnir má senda á tannitravel@tannitravel.is. Nánari upplýsingar um persónuupplýsingar eru í persónuverndarstefnu okkar.

Skráning á vali þínu

Við varðveitum skrá yfir val þitt um vafrakökur í allt að 183 daga. Þar kemur fram slembiauðkenni, dagsetning, valdir flokkar, slóð síðunnar og stytt IP-tala. Landskóði getur fylgt ef hýsingarþjónustan veitir þær upplýsingar. Upplýsingar um vafragerð og viðbætur við slóð síðunnar eru ekki varðveittar í þessari skrá. Aðgangur er bundinn við viðurkennda stjórnendur vefsins.