Við skipuleggjum starfsmannaferðir, hvataferðir og aðrar hópferðir um Austurland. Við gerum ferðaáætlanir, sjáum um akstur og bókum gistingu og afþreyingu í samstarfi við ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
Við getum komið með tillögur að dagskrá eða unnið út frá hugmyndum hópsins. Við tökum einnig að okkur framkvæmd ferða sem viðskiptavinir hafa þegar skipulagt.