• Heim
  • Um okkur
    • Sagan
    • Bílar
    • Starfsmenn >
      • Minning - Sveinn Sigurbjarnarson
    • Stefnur Tanna Travel
    • Markmið
    • Persónuverndaryfirlýsing
  • Ferðir
    • Dagsferðir >
      • Stuðlagil og Vök
      • Hálendisferðin
      • Hólmanes
      • Vöðlavík
      • POP UP
    • Lengri ferðir >
      • Nóttin er ung I
      • Í faðmi náttúrunnar - kvennaferð
      • Utanlandsferð 2023
    • Ferðaskilmálar
  • Bloggið
  • In English
  • Sign in
    • Starfsmannahandbók
    • Öryggisáætlun
TANNI TRAVEL
  • Heim
  • Um okkur
    • Sagan
    • Bílar
    • Starfsmenn >
      • Minning - Sveinn Sigurbjarnarson
    • Stefnur Tanna Travel
    • Markmið
    • Persónuverndaryfirlýsing
  • Ferðir
    • Dagsferðir >
      • Stuðlagil og Vök
      • Hálendisferðin
      • Hólmanes
      • Vöðlavík
      • POP UP
    • Lengri ferðir >
      • Nóttin er ung I
      • Í faðmi náttúrunnar - kvennaferð
      • Utanlandsferð 2023
    • Ferðaskilmálar
  • Bloggið
  • In English
  • Sign in
    • Starfsmannahandbók
    • Öryggisáætlun


Sólstöðuferð 
Nóttin er ung 
Dagsetning fyrir 2023 tilkynnt síðar!

Við göngum á nóttunni og sofum á daginn

​
​Nótt 1 
Ferðin hefst frá Egilsstöðum og hópnum ekið að upphafi gönguleiðar í Stórurð.  Stórurð er ein mikilfenglegasta náttúrusmíð á Íslandi og kúrir í faðmi Dyrfjalla. Í urðinni er einstök náttúra, sléttir grasbalar, hrikalegir grjótruðningar, steinblokkir, sumar tugir metra á hæð, fagrar tjarnir og sérstakur gróður. Ganga í Stórurð er einstök upplifun. 
 
Að morgni laugardags, við lok göngu, er hópurinn sóttur og ekið á Borgarfjörð Eystri þar sem morgunmatur bíður.  Gist á Blábjörgum í uppábúnum rúmum með sameiginlegu baði. 
 
​

Dagur 1 
Þegar fólk hefur sofið mestu ferðaþreytuna úr sér er tilvalið að fara í Musteri SPA og njóta fegurðar Borgarfjarðar Eystri.  Jafnvel má leigja sér hjól og hjóla út í Hafnarhólmann og skoða lundabyggðina, nú eða kíkja á KHB Brugghús, þar sem bruggaður er handverksbjór, landi og gin, ganga á Álfaborgina, skoða kirkjuna eða bara njóta mannlífsins. 
 
Ekið til Eskifjarðar seinnipart dags og tékkað inn á Hótel Eskifjörð. 
 
Hækkun:  450 m. 
Fjöldi km:  14 
Erfiðleikastig ferðar: 3/5 



​Nótt 2 
Ekið frá Eskifirði út á Karlsskála kl. 19:00, þar sem við byrjum gönguna. Við göngum frá Karlsskála um samnefndar skriður og uppá í Valahjalla þar sem er að finna brak úr þýskri herflugvél sem fórst í Sauðatindi í maí 1940.  Þar eru einnig stórbrotin ummerki eftir mikið berghlaup úr tindinum frá árinu 2014.   
 Við finnum leynitjörn og njótum náttúrunnar og útsýnisins yfir að eyjunni Skrúð og yfir mynni Reyðarfjarðar. 
 

Dagur 2 
Við sofum ferðaþreytuna úr okkur á Hótel Eskifirði.  Frábær sundlaug er í bænum og gott að láta ferðaþreytuna líða úr sér og njóta fjallanna í leiðinni eða fá sér léttan gönguferð um bæinn, kíkja á Sjóminjasafnið eða í Randulffssjóhús og njóta sögunnar og veitinga þar. 
 
Við keyrum til Egilsstaða seinnipart dags áður en við höldum á hátindinn, Snæfell.  
 
Hækkun:   410 m. 
Fjöldi km:  12 
Erfiðleikastig ferðar:  3/5 



Nótt 3 
Við leggjum af stað frá Egilsstöðum kl. 19:00 og ökum inn Vellina og Fljótsdalinn um Fljótsdalsheiði fram hjá Snæfellsskála að upphafi gönguleiðar á ​konung íslenskra fjalla, hæsta fjall utan jökla á Íslandi, 1.833 m.y.s., Snæfell. 
 
Aðal gönguleiðin hefst skammt innan við Snæfellsskála og er leiðin stikuð upp undir jökulhettuna. Leiðin hentar flestu fjallgöngufólki og skiptast á brattir og þægilegri kaflar. Útsýnið af toppi Snæfells er erfitt að toppa. 
 

Dagur 3 
​Á leiðinni til baka er komið við í Laugarfelli, þar sem við fáum morgunverð og dýfum okkur í dásamlegar náttúrulaugar með útsýni á fjallið sem við vorum að toppa. 
 
Við gerum ráð fyrir að enda þessa frábæru næturferð á Egilsstöðum um kl. 11:00 að morgni dags. 
 
​Hækkun:  1.030 m. 
Fjöldi km:  14 
Erfiðleikastig ferðar:  3/5 


Taka með:
  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar 
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður 
  • Nærf​öt, ull eða flís, eftir veðri 
  • Peysa úr ull eða flís 
  • Stuttermabolur 
  • Göngubuxur / stuttbuxur 
Í bakpokanum:
  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum 
  • Áttaviti, landakort og/eða GPS tæki (sé þekking til staðar) 
  • Gott smurt nesti fyrir nóttina 
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur 
  • Vatnsbrúsi 
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi 
  • Göngustafir 
  • Myndavél og kíkir 
  • Vasahnífur 
  • Sólgleraugu 
  • Sólarvörn og varasalvi 
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf 
  • Salernispappír, sótthreinsiklútar/gel og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír 
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn 
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir 
  • Góða skapið og kannski eitthvað fleira sem þér þykir ómissandi! 
 
Öðrum farangri, sem fylgir ekki gönguferðunum, verður að sjálfsögðu ekið á milli staða fyrir hópinn. 



Innifalið:
  • Akstur frá Egilsstöðum á fyrsta kvöldi og allan tímann á meðan ferð stendur. 
  • ​Gisting á Blábjörgum í uppábúnum rúmum með sameiginlegu baði. 
  • Gisting á Hótel Eskifirði í uppábúnum rúmum með baði. 
  • 3x morgunverður 
  • Allar göngur og fjallaleiðsögn 
​Annað:
  • ​Leiðsögumaður: Skúli Júlíusson
  • Tungumál: Íslenska/Enska
  • Aldurstakmark: 14 ára og eldri
  • Hér getur þú séð ferðasögu 2021

Verið er að vinna í heimasíðu Tanna Travel um þessar mundir, ef þú rekst á eitthvað ósamræmi
eða finnur ekki einhverjar upplýsingar, hafðu þá samband við okkur!
Picture

Tanni ferðaþjónusta ehf 
​
| Strandgata 14 |735 Eskifjörður | ICELAND |
www.tannitravel.is | tannitravel@tannitravel.is 
| tel. +354-476-1399 | kt. 680593-2489
                                Tanni Travel hefur fullgild leyfi ferðamálastofu sem ferðaskrifstofa.

Picture

Picture
  • Heim
  • Um okkur
    • Sagan
    • Bílar
    • Starfsmenn >
      • Minning - Sveinn Sigurbjarnarson
    • Stefnur Tanna Travel
    • Markmið
    • Persónuverndaryfirlýsing
  • Ferðir
    • Dagsferðir >
      • Stuðlagil og Vök
      • Hálendisferðin
      • Hólmanes
      • Vöðlavík
      • POP UP
    • Lengri ferðir >
      • Nóttin er ung I
      • Í faðmi náttúrunnar - kvennaferð
      • Utanlandsferð 2023
    • Ferðaskilmálar
  • Bloggið
  • In English
  • Sign in
    • Starfsmannahandbók
    • Öryggisáætlun