Við göngum á nóttunni og sofum á daginn
STÓRURÐ föstudaginn 1. júlí 2022
Gengið í Stórurð sem er ein mikilfenglegasta náttúrusmíð á Íslandi og kúrir í faðmi Dyrfjalla. Í urðinni er einstök náttúra, sléttir grasbalar, hrikalegir grjótruðningar,steinblokkir, sumar tugir metra á hæð, fagrar tjarnir og sérstakur gróður. Ganga í Stórurð er einstök upplifun. Við göngum frá Vatnsskarði og komum niður í Njarðvík. Mæting er á bílastæði á Vatnsskarði kl. 20:00. Hækkun: 450 m. Fjöldi km: 14 Erfiðleikastig ferðar: 3/5 BLÁGIL laugardaginn 2. júlí 2022 Ekið frá Egilsstöðum kl. 19:00 í Breiðdal, þar sem við ætlum að ganga í Blágil, eina best földu perlu Austurlands í fornri megineldstöð, Breiðdalseldstöð. Sú eldstöð er prýdd stórum ríólít innskotum með tignarlegum og sérstæðum tindum. Í Blágili er stórkostleg litadýrð á ljósgrænu berginu. Hækkun: 400 m. Fjöldi km: 9 Erfiðleikastig ferðar: 2/5 SNÆFELL sunnudaginn 3. júlí 2022 Eftir að hafa ekið inn Vellina og Fljótsdalinn um Fljótsdalsheiði fram hjá Snæfellsskála, hefjum við gönguna á konung íslenskra fjalla, hæsta fjall utan jökla á Íslandi, Snæfell, 1833 m.y.s. Leiðin hentar flestu fjallgöngufólki og skiptast á brattir og þægilegri kaflar. Útsýni af toppi Snæfells er erfitt að toppa. Á leiðinni til baka er komið við í Laugarfelli, þar sem við fáum morgunverð og dýfum okkur í dásamlegar náttúrulaugar með útsýni á fjallið sem við vorum að toppa. Við gerum ráð fyrir að enda þessa frábæru næturferð á Egilsstöðum um milli 10:00 og 11:00 að morgni mánudags. Mæting við N1 á Egilsstöðum kl. 19:00. Hækkun: 1.030 m. Fjöldi km: 14 Erfiðleikastig ferðar: 3/5 |
Ganga á Snæfell:
Morgunverður og baðferð í Laugarfelli er ekki innifalið í verði, greiðist á staðnum.
|
Taka með:
|
Innifalið:
Annað:
|
Í bakpokanum:
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og/eða GPS tæki (sé þekking til staðar)
- Gott smurt nesti fyrir nóttina
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Vasahnífur
- Sólgleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, sótthreinsiklútar/gel og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
- góða skapið og kannski eitthvað fleira sem þér þykir ómissandi!