• Heim
  • Um okkur
    • Sagan
    • Bílar
    • Starfsmenn >
      • Minning - Sveinn Sigurbjarnarson
    • Stefnur Tanna Travel
    • Markmið
    • Persónuverndaryfirlýsing
  • Ferðir
    • Dagsferðir >
      • Stuðlagil og Vök
      • Hólmanes
      • POP UP
    • Næturferðir >
      • Nóttin er ung - 3 ferðir
      • Stórurð
      • Blágil
      • Snæfell
    • Lengri ferðir >
      • Barðsnes, kvennaferð
      • Utanlandsferð 2023
    • Ferðaskilmálar
  • Bloggið
  • Störf í boði
  • In English
  • Sign in
    • Starfsmannahandbók
    • Öryggisáætlun
TANNI TRAVEL
  • Heim
  • Um okkur
    • Sagan
    • Bílar
    • Starfsmenn >
      • Minning - Sveinn Sigurbjarnarson
    • Stefnur Tanna Travel
    • Markmið
    • Persónuverndaryfirlýsing
  • Ferðir
    • Dagsferðir >
      • Stuðlagil og Vök
      • Hólmanes
      • POP UP
    • Næturferðir >
      • Nóttin er ung - 3 ferðir
      • Stórurð
      • Blágil
      • Snæfell
    • Lengri ferðir >
      • Barðsnes, kvennaferð
      • Utanlandsferð 2023
    • Ferðaskilmálar
  • Bloggið
  • Störf í boði
  • In English
  • Sign in
    • Starfsmannahandbók
    • Öryggisáætlun

Næturferð
Nóttin er ung 
1. - 4. júlí 2022

Við göngum á nóttunni og sofum á daginn
Kíktu líka á sólstöðuferðina 18.-21. júní
eða bókaðu stakar göngur!

Nótt 1 - STÓRURР
Ferðin hefst á Gistihúsinu Lake Hótel á Egilsstöðum.  Hægt er að tékka inn á hótelið eftir kl. 16:00 gera allt klárt fyrir gönguna og jafnvel fá sér kvöldverð þar áður en haldið er af stað. 
Klukkan 19:00 er hópnum ekið að upphafi gönguleiðar í Stórurð.  Stórurð
 er ein mikilfenglegasta náttúrusmíð á Íslandi og kúrir í faðmi Dyrfjalla. Í urðinni er einstök náttúra, sléttir grasbalar, hrikalegir grjótruðningar, steinblokkir, sumar tugir metra á hæð, fagrar tjarnir og sérstakur gróður. Ganga í Stórurð er einstök upplifun. 
 
Að morgni laugardags, við lok göngu, er hópurinn sóttur og ekið í gistingu á Egilsstöðum.  Gist á Lake hótel í herbergjum með baði. 

​Dagur 1 
Þegar fólk hefur sofið mestu ferðaþreytuna úr sér er dagurinn frjáls og tilvalið að heimsækja Baðhúsið Spa sem er á hótelinu og fá sér létta göngu um bæinn. Lake hotel er með einn besta veitingastað á Austurlandi og því tilvalið að njóta hans og þess sem boðið er uppá þar. 

Hækkun:  450 m. 
Fjöldi km:  14 
Erfiðleikastig ferðar: 3/5
 


Nótt 2 - BLÁGIL 
Ekið frá Egilsstöðum kl. 19:00 í Breiðdal, þar sem við ætlum að ganga í Blágil, eina best földu perlu Austurlands í fornri megineldstöð, Breiðdalseldstöð. Sú eldstöð er prýdd stórum ríólít innskotum með tignarlegum og sérstæðum tindum. Í Blágili er stórkostleg litadýrð á ljósgrænu berginu. 

Dagur 2 
Við sofum ferðaþreytuna úr okkur á Lake hotel og fáum að tékka okkur út kl. 12:00. Þá er tilvalið að njóta þess að slaka á í Vök baths, áður en við höldum á hátindinn, Snæfell. 

Hækkun:   400 m. 
Fjöldi km:  9 
Erfiðleikastig ferðar:  2/5 

 
Nótt 3 - SNÆFELL 
Við leggjum af stað frá Egilsstöðum kl. 19:00 og ökum inn Vellina og Fljótsdalinn um Fljótsdalsheiði fram hjá Snæfellsskála að upphafi gönguleiðar á ​konung íslenskra fjalla, hæsta fjall utan jökla á Íslandi, 1.833 m.y.s., Snæfell. 
 
Aðal gönguleiðin hefst skammt innan við Snæfellsskála og er leiðin stikuð upp undir jökulhettuna. Leiðin hentar flestu fjallgöngufólki og skiptast á brattir og þægilegri kaflar. Útsýnið af toppi Snæfells er erfitt að toppa. 
 
Dagur 3 
Á leiðinni til baka er komið við í Laugarfelli, þar sem við fáum morgunverð og dýfum okkur í dásamlegar náttúrulaugar með útsýni á fjallið sem við vorum að toppa. 
 
Við gerum ráð fyrir að enda þessa frábæru næturferð á Egilsstöðum um kl. 11:00 að morgni dags. 
 
​Hækkun:  1.030 m. 
Fjöldi km:  14 
Erfiðleikastig ferðar:  3/5 
Verð
119.800.- kr per mann (Double room)
136.000.- kr per mann (Single room)

Brottfarastaður:

Gistihúsið Lake Hótel Egilsstöðum - sjá kort
​

Taka með:
  • Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar 
  • Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður 
  • Nærf​öt, ull eða flís, eftir veðri 
  • Peysa úr ull eða flís 
  • Stuttermabolur 
  • Göngubuxur / stuttbuxur 
     Í bakpokanum:
  • Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum 
  • Áttaviti, landakort og/eða GPS tæki (sé þekking til staðar) 
  • Gott smurt nesti fyrir nóttina 
  • Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur 
  • Vatnsbrúsi 
  • Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi 
  • Göngustafir 
  • Myndavél og kíkir 
  • Vasahnífur 
  • Sólgleraugu 
  • Sólarvörn og varasalvi 
  • Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf 
  • Salernispappír, sótthreinsiklútar/gel og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír 
  • Húfa, vettlingar og buff um hálsinn 
  • Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir 
  • góða skapið og kannski eitthvað fleira sem þér þykir ómissandi!

Öðrum farangri, sem fylgir ekki gönguferðunum, verður að sjálfsögðu ekið á milli staða fyrir hópinn.  
     Innifalið:
  • Akstur frá Egilsstöðum á fyrsta kvöldi og allan tímann á meðan ferð stendur.
  • Gisting á Gistihúsinu á Egilsstöðum – Lake hotel í uppábúnum rúmum með baði. 
  • 3x morgunverður
  • Aðgangseyrir í náttúrlaugar í Laugarfelli
  • ​Allar göngur og fjallaleiðsögn ​
​Annað:
  • ​Leiðsögumaður: Skúli Júlíusson
  • Tungumál: Íslenska/Enska
  • Aldurstakmark: 14 ára og eldri
  • Hér getur þú séð ferðasögu 2021

Verið er að vinna í heimasíðu Tanna Travel um þessar mundir, ef þú rekst á eitthvað ósamræmi
eða finnur ekki einhverjar upplýsingar, hafðu þá samband við okkur!
Picture

Tanni ferðaþjónusta ehf 
​
| Strandgata 14 |735 Eskifjörður | ICELAND |
www.tannitravel.is | tannitravel@tannitravel.is 
| tel. +354-476-1399 | kt. 680593-2489
                                Tanni Travel hefur fullgild leyfi ferðamálastofu sem ferðaskrifstofa.

Picture

Picture
  • Heim
  • Um okkur
    • Sagan
    • Bílar
    • Starfsmenn >
      • Minning - Sveinn Sigurbjarnarson
    • Stefnur Tanna Travel
    • Markmið
    • Persónuverndaryfirlýsing
  • Ferðir
    • Dagsferðir >
      • Stuðlagil og Vök
      • Hólmanes
      • POP UP
    • Næturferðir >
      • Nóttin er ung - 3 ferðir
      • Stórurð
      • Blágil
      • Snæfell
    • Lengri ferðir >
      • Barðsnes, kvennaferð
      • Utanlandsferð 2023
    • Ferðaskilmálar
  • Bloggið
  • Störf í boði
  • In English
  • Sign in
    • Starfsmannahandbók
    • Öryggisáætlun