Fréttir
Ferðalýsing fyrir sumarferðina 2012
Flogið verður frá Keflavík, m. Icelandair, til München að morgni 16. ágúst og ekið til Altmünster í Austurríki, þar sem gist verður fyrstu 3 næturnar. Haldið verður til Slóvakíu og dvalið í Senec, um 25 km. norðaustur af höfuðborginni Bratislava. Gist verður 5 nætur í Slóvakíu. Ekið verður í gegnum Þýskaland til baka og gist í Passau síðustu 4 næturnar. Flogið heim frá München kl. 14:05 þriðjudaginn 28. ágúst.
Markmið okkar hjá Tanna Travel er að þeir sem í ferðirnar fara, komi hvíldir, glaðir og endurnærðir heim.
Nánari upplýsingar um ferðatilhögun og bókanir fást í gegnum síma 476-1399 eða netfangið: tannitravel@tannitravel.is

