Fréttir

Nýr starfsmaður

Hildigunnur Jörundsdóttir hefur hafið störf hjá Tanna Travel.

Hildigunnur Jörundsdóttir útskrifaðist sem stúdent frá Verkmenntaskóla Akureyrar árið 1997, hún lærði síðar ferðamálafræði við Ferðamálaskólann í Kópavogi og útskrifaðist þaðan 2002.  Hún hefur einnig lokið ýmsum námskeiðum tengdum ferðaþjónustu á síðastliðnum árum. 

Hildigunnur hefur góða reynslu af ferðaþjónustu og hefur unnið í ýmsum greinum ferðaþjónustunnar frá 1992 s.s. veitingahúsum, Hótel Óðinsvéum, Markaðsstofu Austurlands, upplýsingamiðstöð Austurland, upplýsingamiðstöð Alcoa og Fjarðabyggðar, og sem ferða- og menningarfulltrúi Fjarðabyggðar.

Hildigunnur mun meðal annars sjá um verkefnisstjórnun í vertrarferðaþjónustu og fleiri skrifstofustörf.

Við bjóðum hana velkomna til starfa.

Skrifa kveðju

Til baka