Fréttir

Þýskaland, Slóvakía, Austurríki

Sumarferð Tanna Travel árið 2012, verður frá 16.-28. ágúst.

Enn hefur ekki verið lögð lokahönd á ferðalýsingu, en flogið verður til München að morgni fimmtudagsins 16. ágúst.
Gist verður 3 nætur í Austurríki á leið okkar til Slóvakíu.  Þar gistum við í 5 nætur, í Senec, sem er um 40 km. norðaustur af höfuðborginni Bratislava.  Þaðan verða gerðar út dagsferðir.  Á leið okkar aftur til München, gistum við í þrjár nætur við borginna Passau í Þýskalandi.

Róleg og þægileg ferð þar sem við skoðum margt skemmtilegt í bland við góða afslöppun :-)

Áhugasamir hafi samband sem fyrst - takmarkað sætaframboð!

Til baka