Fréttir

Laumufarþeginn

Þann 13. júlí 2011 fór unga Tanna fjölskyldan, Díana Mjöll, Sigurbjörn, Jökull Logi, Svanhildur Sól og Sveinn-inn ungi, spennt úr landi til Kaupmannahafnar.  Förinni var heitið til Póllands að sækja nýja bílinn, sem er 19 sæta 4x4 Sprinter árgerð 2011.  Lent var í Kaupmannahöfn um 13.00 að staðartíma og þá þurfti að bíða örlítið eftir lestinni til Karlskrona í Svíþjóð en þaðan áttu þau pantað með næturferju til Gdynia í Póllandi.  Þangað var komið að morgni 14. júlí.  Bílinn fengu þau afhentan þann 15. júlí, eftir þó nokkra bið, vegna pappírsmála sem þurfti að klára.

  Það var því ekki haldið af stað í fyrsta náttstað fyrr en um kl. 17.00.  Þau voru því ekki komin til Bad Freienwalde í Þýskalandi fyrr en um miðnætti það kvöld.

Þau dvöldu 2 nætur hjá vinafólki og héldu svo áfram til Flensburgar í Þýskalandi og svo til Hirtshals í Danmörku, en ferjan Nörræna fór þaðan eldsnemma að morgni þriðjudagsins 19. júlí.

Fjölskyldan var komin eldsnemma á bryggju, tékkaði sig inn og beið á bryggjunni.  Það uppgötvaðist svo ekki fyrr en á miðri leið milli Danmerkur og Íslands að bíllinn var ekki skráður í ferjuna og þar með orðinn laumufarþegi :-)

Þegar heim var komið var rútan búin að fá nafnið "LAUMA".

Hér má sjá fleiri myndir úr ferðalaginu

Til baka