Upphéraðsferðir - daglegar áætlunarferðir
Í dag, 29. júní, hóf Tanni Travel akstur á áætlunarferðum frá Egilsstöðum í Végarð. Þetta er tilraunaverkefni milli Tanna og ferðaþjónustuaðila á Hallormsstað og í Fljótsdal, en þar á milli hefur verið stofnað til klasasamstarfs til að efla ferðaþjónustu á Upphéraði með sameiginlegri kynningu og áætlunarferðum. Farnar verða 3 ferðir á dag, á morgnana, um miðjan dag og seinnipartinn fram yfir verslunarmannahelgi.
Hér má sjá áætlunina og verð
Ferðirnar eru hugsaðar fyrir fólk sem starfar á Upphéraði eða Egilsstöðum, en býr ekki þar og einnig fyrir alla sem vilja vera orkuvænir og nýta sér almenningssamgöngur til að komast á milli staða.
Samstarfsaðilarnir í klasanum, auk TannaTravel, eru eftirfarandi:
Landsvirkjun, upplýsingamiðstöðin Végarði
Vatnajökulsþjóðgarður, Snæfellsstofa
Skriðuklaustur, Gunnarshús
Skriðuklaustur, Klausturkaffi
Fljótsdalsgrund, gisting
Fljótsdalshreppur
Skógrækt ríkisins, Hallormsstaðaskógur
Hótel Hallormsstaður, gisting og matur
Fljótsbátar, hesta- og bátaleiga Hallormsstað
Hafursá, gisting.
Hallormsstaður og Fljótsdalur státa af stærsta skógi landsins, næsthæsta fossinum, aflmestu virkjuninni, klausturminjum, menningarsetri og vistvænni gestastofu fyrir stærsta þjóðgarð Evrópu. Á svæðinu eru allar tegundir af gistingu, allt frá svefnpokaplássi og tjaldsvæðum, upp í hótelsvítur og sumarhús. Þar er einnig að finna úrval gönguleiða, hesta- og bátaleigu og yfir sumarið eru starfræktir þar þrír veitingastaðir sem leggja áherslu á hráefni svæðisins, s.s. hrútaber, lerkisveppi og hreindýrakjöt.
Er það von okkar hjá Tanna Travel að þessum ferðum verði vel tekið svo keyra megi áætlun aftur næsta sumar.

