Fréttir

Það reddast - Sveinn Sigurbjarnarson lítur um öxl

Sveinn Sigurbjarnarson stofnandi og framkvæmdastjóri Tanna Travel hefur lent í ýmsu og nú er búið að koma því niður á blað.

Út er komin bókin "Það reddast" sem hafa löngum verið einkunnarorð Sveins en hann er mikill ferðafrömuður og ævintýramaður og fer sjaldnast troðnar slóðir – ef þá nokkurn tíma.  Hann hefur þvælst um fjöll og firnindi, láglendi og hálendi og hjarnbreiður jöklanna með þúsundir ferðamanna og ævintýrin í þessum ferðum eru mörg og sum býsna skuggaleg. Kappinn lætur sér þó fátt um finnast, enda sagður áræðinn, jafnvel bíræfinn og ennfremur svalur í þess orðs dýpstu merkingu.

Í bók þessari lítur Svenni um öxl og rifjar upp minningarbrot frá liðinni ævi með aðstoð nokkurra samferðamanna.  Yfir þeim er vitaskuld ævintýrablær, enda sannleikurinn oft lyginni líkastur.

Það er bókaútgáfan Hólar sem gefur bókina út og er hún til í öllum betri bókaverslunum á landinu.

Til baka