Fréttir

Afslöppun og endurnæring

Afslöppun og endurnæring á Hótel Loftleiðum fyrir 60 ára og eldri

22.-26. nóvember 2010
 
 
Marentza Poulsen mun af sinni alkunnu gestrisni hugsa um hópinn frá upphafi til enda. Marentza hefur einstaklega gefandi, hlýtt og skemmtilegt viðmót og er engum betur treystandi fyrir ánægjulegri upplifun hópsins. Hver dagur verður uppfullur af afslappaðri stemmingu, skoðunarferðum, endurnærandi gönguferðum, girnilegum mat og frábærum félagsskap.
 
Þessi notalegi pakki inniheldur eftirfarandi þjónustu:
      Rútu til Reykjavíkur.
      Gisting í þægilegum 2ja manna herbergjum á Hótel Loftleiðum í 4 nætur ásamt morgunverði.
      Umsjón Marentzu Poulsen allan tímann.
      Þrír notalegir kvöldverðir (2x tveggja rétta ásamt kaffi/te og 1x jólahlaðborð)
      Þrjár kvöldvökur, þar sem boðið verður upp á kaffi, te og létt meðlæti, ásamt lifandi harmonikkuspili og dansi
      Skoðunarferð um Reykjavík með Marenztu Poulsen, þar sem meðal annars verða heimsótt Ráðhúsið, Alþingishúsið og aðrir áhugaverðir staðir.
      Frjálst kvöld á miðvikudeginum.
 
Verð pr. mann í 2ja manna herbergi: 59.700,- (miðað við 35 greiðandi farþega).
Aukagjald fyrir eins manns herbergi: 9.000,-
 
 
 
Á Hótel Loftleiðum er eftirfarandi þjónusta einnig í boði:
      Frír aðgangur að sundlaug, gufu og heitum potti
      Frábærar gönguleiðir umhverfis hótelið
      Fríar rútuferðir milli hótelsins og miðbæjarins fimm sinnum á dag
      Snyrti- og nuddstofan Dong Fang (betra er að bóka snyrtingu
og nuddmeðferðir fyrirfram og þarf að borga fyrir aukalega)
      Hárgreiðslustofan Garbó (betra er að bóka fyrirfram og þarf að
borga fyrir aukalega)
      Ef nægilegur áhugi er fyrir hendi verður hægt að bjóða upp á
vatnsleikfimi fyrir hópinn í sundlaug hótelsins (þarf að bóka fyrirfram og borga fyrir aukalega).
 
Ef þið hafið áhuga á að bóka eitthvað af ofantöldu, aðstoðum við gjarnan við það.

Til baka