Fréttir

Náttúran tekur völdin

Tanni Travel tók á móti flottum hópi starfsfólks BM-Vallár á Egilsstöðum á föstudag.  Kvöldið var frjálst en á laugardag var farið á Reyðarfjörð, á Stríðsárasafnið, á Norðfjörð, þar sem snjóflóðavarnargarðarnir voru skoðaðir, borðað í Egilsbúð og Safnahúsið heimsótt.  Þá var ekið til baka yfir Oddsskarð og út í Helgustaðarnámu, sem er þekktasta silfurbergsnáma heims, og þar fékk hópurinn að reyna það hvernig það var að vera námuverkamaður, bogra inní lágum og rökum göngunum með smá ljóstýru sér til lýsingar.

Dagurinn endaði á Randulffssjóhúsi, þar sem borinn var fram "þjóðarréttur hússins", hákarl, harðfiskur og brennivín og húsið skoðað, en það er æði merkilegt norskt sjóhús frá árinu 1890.  Eftir kvöldverðinn hélt hljómsveit hússins, Randúlfarnir, uppi stuðinu fram eftir kvöldi.

Á sunnudeginum stóð til að heimsækja Fljótsdalsstöð og Skriðuklaustur, en sökum gossins í Eyjafjallajökli var ekki hægt að fljúga yfir landið.  Nú voru góð ráð dýr... en sú ákvörðun var tekin að biðja Svein um að keyra fólkinu heim, sem hann og gerði.

Takk fyrir samveruna BM-Vallá

Til baka