Fréttir
Sumarferð TANNA erlendis 2010
Við viljum kynna fyrir þér ferð sem við hjá Tanna Travel höfum sett saman til Þýskalands og Tékklands í sumar.
Sveinn Sigurbjarnarson verður bílstjóri i ferðinni og sem fyrr er okkar markmið að ferðin sé róleg og þægileg og að fólk komi endurnært heim.
Vitir þú um einhvern sem hefur hug á að ferðast í sumar, biðjum við þig um að leyfa honum að frétta af þessari ferð. Ekki hika við að hringja, s. 476-1399, eða senda okkur tölvupóst, tannitravel@tannitravel.is, ef þú hefur einhverjar spurningar.

