10 ára afmæli Markaðsstofu Austurlands
Markaðsstofa Austurlands hélt upp á 10 ára afmæli sitt um helgina á Hótel Héraði.
Dagurinn byrjaði kl. 10.00, laugardaginn 7. mars,
með aðalfundi og vinnufundi.
Kl. 15.00 byrjaði svo afmælismálþing þar sem Ásmundur Gíslason Árnanesi talaði um stofnun MA, Sveinn Sigurbjarnarson talaði um ferðaþjónustu á Austurlandi áður fyrr og Sævar Guðjónsson Mjóeyri talaði um ferðaþjónustu á Austurlandi eins og hún er í dag.
Þetta voru hinir skemmtilegustu fyrirlestrar þar sem margir skemmtu sér við gamlar minningar og aðrir fengu innsýn í það hvaðan við komum. Einnig var nýtt vörumerki ferðaþjónustu á Austurlandi afhjúpað og slagorðið "Austurland, í alvöru" kynnt.
Í framhaldi af fyrirlestri Sveins barst okkur þessi vísa:
Fyrir tíu fæddumst árum
fram úr öðrum stofum skárum.
Hérna finnast söfn og setur,
sýna vel hvað svæðið getur.
Svenni yfir sviðið fór,
sveik ei minni sem ekkert sór.
Frá Austurlandi Ásta heyrði,
ekkert nema Svenni keyrði.
Hefur Svenni hellulagt,
hálfa leið á Sprengisandi.
Máske hef of mikið sagt
en mest er þetta Svenna andi.
Myndir frá afmælinu má sjá hér.

