Þýskaland, ágúst 2009
Við viljum kynna fyrir þér ferð sem við hjá Tanna Travel höfum sett saman til Þýskalands í sumar. Ekki er umhugsunarfresturinn langur, eða til 27. febrúar nk. en það kemur til af því að við þurfum að staðfesta flugsætin f. þennan tíma.
Sveinn Sigurbjarnarson verður bílstjóri i ferðinni og sem fyrr er okkar markmið að ferðin sé róleg og þægileg og að fólk komi endurnært heim.
Vitir þú um einhvern sem hefur hug á að ferðast í sumar, biðjum við þig um að leyfa honum að frétta af þessari ferð.
Ekki hika við að hringja, s. 476-1399, eða senda okkur tölvupóst, tannitravel@tannitravel.is, ef þú hefur einhverjar spurningar.

13. – 25. ágúst 2009
Fimmtudagurinn 13. ágúst
Flogið frá Keflavík m. Iceland Express kl. 07.00. Lent í Frankfurt Hahn kl. 12.25 að staðartíma. Ekið sem leið liggur til Karlsruhe, þar sem gist verður fyrstu nóttina.
Lagt af stað frá hóteli eftir morgunverð og haldið til Königsee, þar sem gist verður næstu 4 nætur.
Laugardagurinn 15. ágúst – þriðjudagsins 18. ágúst
Það sem verður boðið uppá er m.a skoðunarferð í Arnarhreiður Hitlers, sigling á Königsee og kláfsferð upp á Jenner.
Þriðjudagurinn 18. ágúst
Ekið frá Königsee að Seefeld í Tírol í Austurríki þar sem gist verður næstu 4 nætur.
Miðvikudagurinn 19. ágúst – laugardagsins 22. ágúst.
Seefeld er einn þekktasti ferðamannastaður Tíróls og farið verður í dagsferðir út frá Tíról, m.a. til Innsbruck. Einnig er frábært að eiga góðan dag í Seefeld, fara í gönguferðir og jafnvel leigja sér golfkylfur og taka hring á 18 holu golfvelli.
Laugardagurinn 22. ágúst
Við kveðjum alpana í Tírol og höldum til Þýskalands, að Bodensee, en við munum næstu 3 nætur gista í Friedrichshafen.
Sunnudagurinn 23. ágúst – 25. ágúst
Farið verður í dagsferðir út frá Friedrichshafen, m.a. til blómaeyjunnar Mainau og Tittisee.
Þriðjudagurinn 25. ágúst
Eftir morgunverð skilum við herbergjum, tökum flug frá Friedrichshafen flugvelli kl. 13.35 með Iceland Express og lendum í Keflavík kl. 15.30 að staðartíma.
Verð pr. mann:
241.000,-
Innifalið í verði: Flug Keflavík-Frankfurt, Friedrichshafen-Keflavík, allur akstur erlendis, leiðsögn, gisting í tveggja manna herbergjum m. baði, morgunverður og kvöldverður á öllum hótelum.
Síðasti bókunardagur er 27. febrúar.

