Fréttir

Tanni á tuttugu bíla

Tanni Travel hefur nú á að skipa 20 hópbifreiðum og er því eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Austurlandi. Bílarnir 20 rúma samtals nærri 1000 manns. Í sumar hafa 4 bílar bæst í flotann, tveir þeir nýjustu um síðustu helgi. Tanni Travel skipuleggur ferðir innanlands og utan.

Árið 2005 gerðu Bechtel International og Tanni Travel með sér samning um flutning á vinnumönnum Bechtel, við byggingu álvers í Reyðarfirði, til og frá vinnubúðum kvölds og morgna. Þá keypti fyrirtækið 6, 70 manna, rútur frá Þýskalandi og leigði 2 samskonar rútur. Við þetta stækkaði rútuflotinn umtalsvert. Hluti af þessum flota nýtist nú við skólaakstur fyrir sveitarfélagið Fljótsdalshérað. Þegar álverið tók til starfa gerðu Alcoa Fjarðaál og Tanni Travel með sér samning um akstur á starfsmönnum Alcoa frá Egilsstöðum, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði til og frá vinnu. Í sumar keypti Tanni Travel 2 nýja 20 manna bíla af gerðinni Mercedec Benz Sprinter til þess aksturs, með mengunarstuðul 4, og nú var fyrirtækið að taka á móti 2 nýjum bílum sem voru sérpantaðir fyrir Tanna Travel, einnig fyrir þennan akstur. Bílarnir voru smíðaðir í Ulm í Þýskalandi og eru af gerðinni Mercedes Benz Integro. Þeir eru 54 og 58 sæta með mengunarstuðul Euro 5 og öll helstu þægindi fyrir farþega.

Bílarnir voru teknir formlega í notkun sl. sunnudag og bauð Tanni Travel starfsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra í bíltúr og kaffi af því tilefni. Við það tækifæri þakkaði framkvæmdastjórinn því starfsfólki sem unnið hefur hjá fyrirtækinu í gegnum árin, fyrir trausta og dygga þjónustu, því starfsfólkið er jú fjöregg hvers fyrirtækis.

Sjá myndir hér

Nánar um fyrirtækið

Til baka