• Heim
  • Um okkur
    • Sagan
    • Bílar
    • Starfsmenn
    • Stefnur Tanna Travel
    • Til gamans
  • Ferðir
    • Innanlandsferðir
    • Utanlandsferðir >
      • Sviss 2019
      • Ferðaskilmálar
  • Skip
  • Meet the Locals
    • Bæjarganga
    • Í fótspor KOYLI flokksins
    • Eyðivíkur og firðir á Austurlandi
    • Núvitundar jóga ganga
    • Vöðlavík
    • Sérsniðnar ferðir
  • In English
Tanni Travel
  • Heim
  • Um okkur
    • Sagan
    • Bílar
    • Starfsmenn
    • Stefnur Tanna Travel
    • Til gamans
  • Ferðir
    • Innanlandsferðir
    • Utanlandsferðir >
      • Sviss 2019
      • Ferðaskilmálar
  • Skip
  • Meet the Locals
    • Bæjarganga
    • Í fótspor KOYLI flokksins
    • Eyðivíkur og firðir á Austurlandi
    • Núvitundar jóga ganga
    • Vöðlavík
    • Sérsniðnar ferðir
  • In English

21.06.18
​                                                   Almennir skilmálar vegna farmiðakaupa, flugs og alferða
1.  Upplýsingar og pöntun
Í ferðabæklingi okkar, verðskrá og öllum auglýsingum ferðaskrifstofunnar reynum við ávallt að tilgreina verð og allar upplýsingar sem snerta ferðina á greinargóðan og nákvæman hátt. Pöntun á ferð er bindandi samningur fyrir farþega og ferðaskrifstofuna, en þó því aðeins að ferðaskrifstofan hafi staðfest pöntunina skriflega tilbaka og farþegi hafi greitt tilskilið staðfestingargjald. Ef farþegi hefur sett fram sérstakar kröfur um aukaþjónustu skal það koma fram í sérsamningi aðila. Sé um að ræða pantanir fyrir hópa skal framlagður nafnalisti teljast skuldbindandi af hálfu farþega, en þó skal ferðaskrifstofan leyfa einstakar breytingar á nöfnun þeirra sem ferðast hafi slíkar breytingar ekki nein áhrif á heildarfjölda farþega viðkomandi hóps.
 
2.  Greiðslur
Áætlað verð ferðar, eins og það er á greiðsludegi, skal greitt samkvæmt auglýstum skilmálum ferðaskrifstofunnar og skulu ferðaskjöl sótt/afhent um leið og fullnaðargreiðsla ferðar hefur farið fram. Þó fá farþegar ávallt Bráðabirgðakvittun við greiðslu staðfestingargjalds eða innáborguna þar sem fram koma allar helstu upplýsingar sem lúta að þeirri ferð sem farþegi er að kaupa. Fullnaðargreiðslu skal vera lokið eigi síðar en 8 vikum fyrir brottför en í einstaka tilfellum áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til þess að krefjast fullnaðarfrágangs með lengri tíma í brottför ferðar ef um leiguflug er að ræða.
 
3.  Greiðslufrágangur
Staðfestingargjald er breytilegt milli ferða og er óafturkræft.  Lokagreiðsla skal hafa borist ferðaskrifstofu eigi síðar en 8 vikum fyrir brottfarardag.  Hafi fólk hug á að skipta greiðslum niður á kreditkort skal hafa samband við okkur um leið og staðfestingargjald er greitt.

Þegar fargjaldareglur flugfélaga eða annarra samstarfsaðila ganga lengra hvað greiðslur varðar en skilmálar ferðaskrifstofunnar gildir sú regla er gengur lengra. 
 
4.  Verð og verðbreytingar
Uppgefið áætlað verð við staðfestingu pöntunar kann að taka breytingum ef breyting verður á einum eða fleiri eftirfarandi verðmyndunarþátta:
  • Flutningskostnaði, þar með töldum eldsneytiskostnaði.
  • Sköttum eða gjöldum fyrir tiltekna þjónustu s.s. lendingargjöldum eða gjöldum fyrir að fara um borð eða frá borði í höfnum eða á flugvöllum.
  • Gengi þess gjaldmiðils sem á við um tiltekna ferð.
Ekki má breyta umsömdu verði síðustu 20 dagana áður en ferð hefst.
 
Það sem er ekki talið upp í verði sem innifalið, en gæti verið nefnt í ferðalýsingu, er valfrjálst en skal greiðast sérstaklega af hverjum einstaklingi fyrir sig.

5.  Afpöntun ferðar

a) Samsett margra daga ferð sem innifelur flug, hótel og skipulagða dagskrá fæst ekki endurgreidd þegar minna en 8 vikur eru í brottför.

b) Ef ferð er afpöntuð, þá greiðir kaupandi:
  • 4-8 vikum fyrir brottför – 40% af heildarupphæð
  • 2-4 vikum fyrir brottför – 60% af heildarupphæð
  • 0-13 dögum fyrir brottför – 100% af heildarupphæð.
 
c)  Afturköllun eða breytingar á pöntun með leiguflugi:
  • 2 vikum eða meira fyrir brottför -  90% af heildarupphæð.
  • 0 - 13 dögum fyrir brottför: 100% af heildarupphæð.

Ef reglur samstarfsaðila okkar ganga lengra en að ofan greinir, gildir sú regla sem gengur lengra.

Við mælum eindregið með að fólk kaupi sér forfallatryggingu, komi upp veikindi hjá viðkomandi eða nánustu aðstandendum.
 
Ef þátttakandi mætir ekki til brottfarar á réttum tíma eða getur ekki hafið ferðina vegna skorts á gildum ferðaskilríkjum, svo sem vegabréfi, áritun þess, vottorðs vegna ónæmisaðgerða eða af öðrum ástæðum, á hann ekki rétt á endurgreiðslu ferðarinnar.
 
Endurgreitt er inná kreditkort sem greitt var með en inn á bankareikning farþega hafi greiðsla farið fram með peningum eða banka innleggi. Endurgreiðslugjald er 3.000 kr á mann óháð greiðsluaðferð.
 
Athugið: Pakkaferðum  er ekki hægt að breyta, hvorki breyta dagsetningu, herbergjategund, fjölda í herbergi  né skipta um gististað.

 
6.  Framsal bókunar
Farþegi getur framselt bókun sína til aðila sem fullnægir þátttökuskilyrðum. Skal farþegi sem og framsalshafi tilkynna ferðaskrifstofu skriflega strax um slíkt framsal. Framseljandi ferðar og framsalshafi eru þá sameiginlega og hvor í sínu lagi ábyrgir gagnvart ferðaskrifstofunni og því er varðar greiðslu á eftirstöðvum og öllum aukakostnaði er kann að leiða af slíku framsali. Óheimilt er að framselja ferð eftir að farseðill hefur verið gefinn út eða í öðrum þeim tilvikum þar sem þeir aðilar sem selja þjónustu í ferðina hafa sett ákveðin skilyrði þannig að það sé ekki í valdi ferðaskrifstofunnar að breyta þeim. Ferðaskrifstofan tekur ekki ábyrgð á sölu ferða frá einum farþega til annars.
 
7.  Skyldur þátttakenda
Farþegar eru skuldbundnir að hlíta fyrirmælum fararstjóra eða starfsfólks þeirra aðila er ferðaskrifstofa skiptir við.  Farþegi er skuldbundinn að hlíta lögum og reglum opinberra aðila í þeim löndum sem hann ferðast um, taka tillit til samferðarmanna sinna og hlíta þeim reglum er gilda á flutningatækjum, áningarstöðum (t.d. flughöfnum), gisti- og matsölustöðum o.s.frv., enda ber hann ábyrgð á tjóni sem hann kann að valda með framkomu sinni.  Farþegi sem mætir ekki á brottfararstað (s.s. flugstöð) á réttum tíma hefur fyrirgert rétti sínum til bóta ef hann af þeim sökum verður af pöntuðu fari.
 
8.  Takmörkun ábyrgðar og skaðabætur
Þátttakendur eiga þess kost að kaupa, á sinn kostnað, ferða-, slysa/sjúkra- og farangurstryggingu hjá tryggingafélögum.  Einnig forfallatryggingu/gjald þar sem slík vernd er ekki innifalin í verði ferðar.  Yfirleitt þarf að kaupa þessar tryggingar um leið og staðfestingargjald ferðar er greitt.  Ath. sértu handhafi kreditkorts, fylgja einhverjar ferðatryggingar með, allt eftir gerð kortsins.  Við bendum  fólki á að kynna sér það vel hjá sínu tryggingarfélagi.
 
Mjög mikilvægt er að nafn farþega sé skráð nákvæmlega eins og í vegabréfi viðkomandi.  Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á neinum vandkvæðum sem upp geta komið í tengslum við það.
 
Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að takmarka greiddar skaðabætur í samræmi við þær takmarkanir sem kveðið er á um í landslögum eða alþjóðasamningum. Ferðaskrifstofan gerir ávallt ráð fyrir að farþegar séu heilir heilsu þannig að ekki sé hætta á að þeir valdi öðrum óþægindum eða tefji ferðina vegna sjúkdóms eða veikinda. Ef farþegi veikist í hópferð ber hann sjálfur ábyrgð á kostnaði sem af því kann að hljótast sem og kostnaði við heimferðina. Farþegi á ekki rétt til endurgreiðslu þó hann ljúki ekki ferð af þessum ástæðum eða öðrum, sem ferðaskrifstofunni verður ekki um kennt
 
Hugsanlegar kvartanir vegna ferðarinnar skulu berast til fararstjóra strax. Kvörtun skal síðan berast ferðaskrifstofunni skriflega eins fljótt og við verður komið og í síðasta lagi innan viku frá því viðkomandi ferð lauk, að öðrum kosti eru bótakröfur ekki teknar til greina og farþegi með aðgerðarleysi sínu samþykkt að fella niður allar slíkar kröfur á hendur ferðaskrifstofunni. Verði farþegi fyrir meiðslum eða eignatjóni vegna þess að ferð er ófullnægjandi eða vegna aðgerða (-leysis) ferðaskrifstofunnar á hann rétt á skaðabótum, nema því aðeins að slíkt verði rakið til farþega sjálfs eða þriðja aðila sem ekki tengist ferðaskrifstofunni, svo og ef ófyrirsjáanlegar eða óviðráðanlegar aðstæður eða atburðar valda því sem ferðaskrifstofan gat með engu móti séð fyrir eða komið í veg fyrir. Ef  ferð fullnægir ekki ákvæðum samnings getur farþegi krafist þess að ráðin sé bót á nema það hafi í för með sér óeðlilegan kostnað eða veruleg óþægindi fyrir ferðaskrifstofuna. Ef ekki er hægt að bæta úr því sem á vantar eða einungis með lakari þjónustu á farþegi rétt á verðlækkun á ferðinni sem jafngildir mismuninum á þeirri þjónustu sem veitt var og þeirri sem veitt er.  Að öðru leyti er vísað til gildandi reglugerða bæði innanlands sem erlendis hvað varðar réttindi farþega í alferðum.

9.  Sérákvæði
Flugfélög hafa rétt til breytinga á flugáætlun og flugtímum vegna veðurfarslega orsaka, tafa vegna mikillar flugumferðar, afgreiðslutafar á flugvelli, vegna seinkunnar komu vélar úr öðru flugi eða vegna bilana. Flugfélög hafa og rétt til að skipta um flugvélakost reynist það nauðsynlegt. Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á slíkum töfum flugfélaga eða breytingum frá fyrirfram staðfestri flugáætlun og ber enga skyldu til endurgreiðslu eða fjárhagslegra bóta til handa farþegum. Í þessu sambandi má sjá tilkynningu frá Samgöngustofu.
 
Samkvæmt almennum starfsreglum erlendis hafa hótel og íbúðahótel leyfi til að yfirbóka gistirými til að mæta eðlilegum afföllum á pöntunum. Það getur gerst að okkar hótel og íbúðahótel hafi ekki pláss fyrir alla þá sem bókaðir eru í viðkomandi stað þrátt fyrir fyrirliggjandi staðfestingu til ferðaskrifstofunnar. Viðkomandi hótel og íbúðahótel eru þá skyldug til að útvega farþegum okkar sem ekki fá inni, sambærilegt eða betra hótel. Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á áðurnefndum yfirbókunum, en að sjálfsögðu aðstoðar starfsfólk ferðaskrifstofunnar farþega eftir föngum hverju sinni.
 
Ferðaskrifstofan ber ekki ábyrgð á skemmdum á töskum sem kunna að verða á meðan ferð farþega stendur, hvort sem slíkt hendir í leiguflugi, áætlunarflugi, áætlunarbifreiðum eða öðrum farartæjum sem notuð eru og útveguð af ferðaskrifstofunni. Að sama skapi ber ferðaskrifstofan ekki neina ábyrgð tapist farangur, hann afgreiddur í ranga flugvél, berst síðar eða skemmist í meðferðum. Er farþegum bent að halda vel til haga öllum gögnum um sinn farangur s.s. töskumiðum og í framhaldinu hafa samband við starfsmenn flugvallayfirvalda til að útbúa tjónaskýrslu, óska eftir aðstoð og veita upplýsingar um verðmæti og eða skemmdir. Flugfélagið mun svo sjá um greiðslu skaðabóta samkvæmt alþjóðlegum reglum og er greiðsla send beint til farþega.  Sé um íslenskt flugfélag að ræða þarf sömuleiðis tjónaskýrslu frá flugvallaryfirvöldum farseðil og töskumiða, en þá snýr fólk sér beint til flugfélagsins.  Ferðaskrifstofan mun aðstoða farþega sína eins og kostur er hverju sinni, en getur þó ekki ábyrgst að viðkomandi flugyfirvöld, flugfélög og eða annar aðili sem að þessu kemur muni bæta farþega það tjón sem orðið hefur
 
Bókunaraðili/farþegi staðfestir með notkun þjónustuvefs okkar að hafa lesið, skilið og samþykkir skilmála þessa.
 
Gott að vita:
  • Gott er að mæta snemma á brottfararstað, s.s. flugvöll, í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför.
  • Vinsamlegast ath. að þegar flogið er úr landi er hámarksmagn vökva í handfarangri skv. reglum sem má sjá á vef Samgöngustofu
  • Þegar ferðast er með Norrænu mun allur farangur vera í bílnum, því er gott að pakka nauðsynjavörum sem nota á í ferjunni í sér tösku, sem tekin er með um borð.
  • Mælt er með því að allir farþegar hafi samband við Tryggingarstofnun Ríkisins og útvegi sér evrópskt sjúkratryggingarkort (þrátt fyrir að vera með ferða- og slysatryggingu hjá tryggingarfélagi). Kortið er öllum að kostnaðarlausu.
  • Gjaldeyri til ferðalaga er best að kaupa í viðskiptabanka hvers og eins áður en farið er.
  • Alltaf er hægt að taka pening út í hraðbanka erlendis, en til þess að það sé hægt þarf að hafa kreditkort eða debetkort og leyninúmer á viðkomandi korti, sem fæst í banka hvers og eins.
  • Hver farþegi þarf að hafa vegabréf meðferðis.  Þeir sem ekki eiga slíkt, er bent á að snúa sér til næstu sýsluskrifstofu til að útvega það.  Best er að hafa ekki minna en 2ja vikna fyrirvara á því.
 
Vanti frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við okkur símleiðis í síma 476-1399
eða með því að senda okkur rafræna fyrirspurn á netfangið tannitravel@tannitravel.is
 
Við óskum þér og öðrum sem með þér ferðast góðrar ferðar.
Picture
Tanni ferðaþjónusta ehf | Strandgata 14 |735 Eskifjörður | ICELAND |
www.tannitravel.is | tannitravel@tannitravel.is | tel. +354-476-1399 | kt. 680593-2489
Tanni Travel hefur fullgild leyfi ferðamálastofu sem ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjandi.
  • Heim
  • Um okkur
    • Sagan
    • Bílar
    • Starfsmenn
    • Stefnur Tanna Travel
    • Til gamans
  • Ferðir
    • Innanlandsferðir
    • Utanlandsferðir >
      • Sviss 2019
      • Ferðaskilmálar
  • Skip
  • Meet the Locals
    • Bæjarganga
    • Í fótspor KOYLI flokksins
    • Eyðivíkur og firðir á Austurlandi
    • Núvitundar jóga ganga
    • Vöðlavík
    • Sérsniðnar ferðir
  • In English