Tanni Travel hefur verið með eigin ferðir til útlanda frá árinu 1984.
Fyrst var eingöngu farið til Færeyja, en síðar til Skandinavíu og Evrópu.
Ferðahópur Tanna Travel er orðinn stór og yfirleitt eru ferðirnar orðnar fullar áður en þær eru á nokkurn hátt auglýstar, öðruvísi en með bréfi til þeirra sem eru á póstlista hjá okkur.
Stundum verða ferðirnar til af því að einhver kemur með góða hugmynd til okkar, og stundum höfum við bara sett saman ferð ef okkur hefur dottið eitthvað skemmtilegt í hug!
Dæmi um ferðir eru Færeyjar árlega frá 1984
1985 - 2 ferðir til Skandinavíu
1986 - Noregsferð
1988 - Noregsferð alla leið norður á Nordkap
1989 - Danmörk, Þýskaland, Sviss.
1990 - Þýskaland.
1994 - Noregur
1998 - 7 landa sýn.
2000 - 2 ferðir til Englands og Skotlands.
2001 - Ítalía
2005 - Þýskaland.
2007 - Danmörk og Þýskaland.
2008 - Danmörk, Svíþjóð, Finnland og Noregur alla leið norður á Nordkap
Þýskaland
2009 - Þýskaland, Austurríki.
2010 - Þýskaland, Tékkland.
2011 - Austurríki, Ítalía.
Ef þú vilt láta setja þig á póstlistann okkar, hafðu þá samband við okkur á netfanginu tannitravel@tannitravel.is eða í síma 476-1399.
Skoðaðu líka


