Gestabók
Fín síða hjá ykkur
kveðja Andrés...
Andrés´Elísson
Takk fyrir hamingjuóskirnar :-)...
Tanni Travel
Skilaboð...Frábært! Til hamingju!...
Jóhanna og Fúsi
Tanni Travel hefur farið
út fyrir landssteinana
með hópa frá því árið 1984.
Ýmis félagasamtök og hópar hafa komið til okkar með sínar óskir um ferðir, við höfum tekið þær og útfært.
Við höfum sett upp ferðir fyrir stéttarfélög, kóra, félög eldri borgara, ættarmót, skólahópa og ýmsa aðra hópa.
Öll lönd Skandinavíu hafa verið heimsótt, auk Færeyja. Einnig hafa verið farnar ferðir til Evrópu, allt suður til Flórens á Ítalíu.
Ýmist höfum við lagt til leiðsögumenn í þessum ferðum eða þeir sem um ferðirnar biðja.
Við höfum bæði búið til ferðir þar sem flogið er báðar leiðir og eins höfum við notað ferjuna Norrænu frá Seyðisfirði og siglt báðar leiðir eða aðra.
Ef þú ert með hugmynd að ferð fyrir þinn hóp, hafðu þá samband við okkur á netfanginu tannitravel@tannitravel.is eða í síma 476-1399.
Skoðaðu líka


