Fjármálastjóri
Margrét Óskarsdóttir
Sími: 892-1599
Netfang: tanni@eldhorn.is
Ferill:
Margrét hóf ung störf í fiski og síld og við verslunarstörf í Pöntunarfélagi Eskfirðinga. Hún vann lengst af hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar en einnig á Dvalarheimili aldraðra Hulduhlíð.
Árið 1997 hóf hún störf hjá Alþýðusambandi Austurlands en vegna breyttra starfsaðstæðna hjá Alþýðusambandinu hætti hún störfum þar og fluttist til AFLs starfsgreinafélags.
Margrét hefur mikla reynslu af félagsmálum en hún sat lengi í stjórn Verkamannafélagsins Árvakurs og var starfsmaður þar í afleysingum með fiskvinnunni. Hún gegndi trúnaðarstörfum fyrir Eskifjarðarkaupstað, sem varamaður í bæjarstjórn fyrir Alþýðubandalagið, sem formaður skólanefndar, og með setu í félagsmálaráði.
Margrét hóf störf hjá Tanna Travel árið 2005.


